Bjólfskviða
Hitað upp fyrir XV
Þá er bara vika til stefnu í að Bjólfur XV hefjist og gott að rifja upp markmið klúbbsins sem sett var af Stofnandanum fyrir um fjórtán árum síðan: “Markmið klúbbsins er að sem flestir meðlimir hittist einu sinni í mánuði, fái sér nokkra kalda, spili póker og skemmti sér”. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá…og nokkrir bjórar runnið í gegn um Bjólfsbræður líka og nokkrar fleygar setningar sem hafa flogið í gegnum árin tengdar bjór. Á síðasta heimamótinu á síðasta tímabili heyrðist ein fleyg sem ófáir Bjólfsmenn og...
read moreHúnninn er mættur…til reynslu
Á síðasta aðalfundi var samþykkt að taka Húninn inn í klúbbinn og er hann því kominn á reynslu fram að næsta aðalfundi. Húnninn hefur mætt á mót hjá okkur þegar hann var leynigestur fyrir Kapteininn. Uppáhalds höndin hans er 52…”eins og spilið” sem hann kennir mönnum við hvert tækifæri sem þekkja það ekki og hafa margir fengið að rembast við að leysa það í gegnum árin. Það hefur nú ekki fært honum mikla fjármuni…en spurning hvort hæfileikar þar muni gera eitthvað fyrir hann við pókerborðið hjá Bjólfi. Sumir gætu séð...
read moreEkkert óþarfa gambl
Nú erum minna en tvær vikur þar til að Bjólfur XV hefst og gott að rifja upp þessa fleygu setningu “Óþarfi að gambla…nema til að vinna” sem að Bóndinn lét falla á móti í desember 2017. Fékk þessi að fljúga oft þetta kvöld og ágætis regla til að spila eftir. Hún á líka ágætlega við klúbbinn þar sem það er nú ekki verið að gambla með neinar stórar upphæðir og allir fara sáttir frá hverju kvöldi þó þeir hafi ekki unnið neitt…enda er kostnaður að meðaltali (óábyrgt gisk pistlahöfundar) þrjúþúsundkall og hefur verið nánast...
read moreBjórguðir XV
Óðum styttist í fyrsta mót Bjólfs XV og til samræmis við þessa fleygu setningu hérna að ofan frá 2011 er gott að minna á að Bjórguðir þetta tímabilið eru Lucky og Timbrið. Þeir eru báðir að hampa þessum titli í 4. skiptið og oftast allra. Lucky var síðast í þessu hlutverki 2016 og Timbrið 2018, en sá síðarnefndi átti 3 ár af 4 árunum 2015-2018 líkt og Kapteininn tók sömu rispu 2019-2022…en fjórir hafa unnið tvö ár í röð…en enginn náð að halda þessum titli í þrjú ár samfellt og eitthvað í það gerist 😉 Verður spennandi að sjá...
read moreStyttist í Bjólf XV
Þá eru um sex vikur þar til að 15. starfsár Bjólfs gengur í garð eftir að 14. tímabilinu var slúttað í bústað og hverjir munu mæta einbeyttir til leiks? Það eru oft margir til kallaðir sem eru líklegir til að landa titlinum…en oftar en ekki ná menn ekki að halda einbeytingu og eiga erfitt með standa sig í hverjum mánuði…eða bara mæta…það virðist há mörgum að helga sig einum föstudegi í mánuði í að hittast 😉 Bótarinn tók meistarartitilinn og sýndi að það er hægt að vinna án þess að mæta á öll mót…en spurning hvort það...
read moreBússta’r ’24
Bjólfsbræður við Apavatn í maí 2024 Lokapunturinn á 14. tímabili Bjólfs (Bjólfur 14.9) var um helgina með hinni árlegu bústaðaferð að Apavatni og eins og svo oft áður í brakandi blíðu og eins og ávallt í góðum félagsskap. Tímabilið hefur gengið aðeins brösuglega vegna veðurs og jarðhræringa sem varð til þess að áætlað var að fella út eitt mót hjá hverjum. En á aðalfundi var ákveðið að öll mót gilda á þessu móti og héðan í frá. Góðar líkur voru því á sigur myndi hafast hjá Bótaranum þrátt fyrir að hafa misst af móti þar sem hann var 6 stigum á...
read moreSpurningaleikurinn 2024
Þá eru bara 14 dagar í bústaðinn og fyrir þá sem eiga erfitt með að muna hvenær hann er þá er alltaf gott að hafa hvenær er bústaður? opna og fylgjast með klukkunni telja niður 😉 Til að stytta mönnum stundir (á milli þess að menn fletta í gegnum fleygar setningar) þá er komin upp smá spurningaleikur hérna á síðunni þar sem menn geta spreytt sig á Bjólfsþekkingunni sinni og hitað upp fyrir quiz-ið. Svarið spurningunum og sjáið hvað þið náið hátt: OPNA SPURNINGALEIKINN 2024
read moreBjólfur 14.8
Bjólfur í apríl 2024 Þá er síðasta heimamótinu á 14. tímabilinu lokið. Það leit út fyrir að 11 myndu láta sjá sig hjá Spaða Ásnum þetta föstudagskvöldið. En eftir að hann byrjaði að hita menn upp með öllum veitingunum sem var verið að undirbúa þá hætti Iðnaðarmaðurinn við að mæta og leiddu menn líkurnar að því að honum hafi fundist að sér vegið sem “gestgjafinn” 😉 Bjór Bjórstig kvöldsins Bótarinn fékk bjórgjöf frá Mikkalingnum og það skilaði sér þegar að Mikkalingurinn nældis sér í fyrsta bjórstigið seinna um kvöldið og auk þess...
read moreBjólfur 14.7
Einstaklega hressir menn sem mættu til Iðnaðarmannsins á föstudaginn í sjöunda kvöldið á fjórtánda tímabilinu. Bjór Það komu loksins bjórstig í hús, Timbrið gerði sér lítið fyrir og nældi sér í tvo (og gerði fleiri atrennur að stigum) og er með því kominn með 3 stig og stigi á undan Lucky sem kom sér í annað sætið á eftir koma Bótarinn og Spaða Ásinn með eitt stig. Tvö kvöld eftir og æsispennandi barátta í gangi um bjórinn á þessu tímabili. Mótið Iðnaðarmaðurinn fékk lítið fyrir heimavöllin þó hann væri algjör gestgjafi að sækja heim eins og...
read moreBjólfur 14.6
Það voru hressir Bjólfsbræður sem mættu á til Kapteinsins á föstudagskvöldið og gátu allir sest sáttir niður á lokaborðið þar sem aðeins átta mættu og spilað á einu borði frá upphafi. Pass…nei tékk Febrúarmótið átti að vera hjá Nágrannanum en vegna veðurs og jarðhræringa var tví tvívegis frestað og ákveðið að halda það núna og hjá öðrum þar sem ekki eru allir á landinu. Auk þess ákvað stjórnin að það myndu aðeins verða 8 mót (af 9) sem telja til Bjólfsmeistarans 2024 út af tilfæringum á mótum…þannig að það verður æsispennandi að...
read more
❤️😘