Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Iðanaðarmaðurinn 2

Birt af þann 1. Apr 2017 Í Mót | Engin ummæli


8 Bjófslmenn sóttu Iðanaðarmanninn heim sem hreinlega átti kvöldið…heimavöllurinn var heldur betur að gefa, hann tók sigurinn, þúsarann, eina bjórstigið og var bara með þetta allan tímann…enda með Bjólfshúfu á hausnum og í Liverpool bol =)

Með þessu eina bjórstigi sem kom þetta kvöldið er Iðnaðarmaðurinn með góða 6 stiga forystu í Bjórkeppninni. Það er helmingi meira en Mikkalingurinn sem er í öðru sæti með 3 og síðan koma aðrir með 2 eða 1 og verður erfitt fyrir menn að ná að hífa sig upp með aðeins 2 kvöld eftir.

Timbrið mætti eftir langa fjarveru og endaði á því að taka annað sætið og ná í verðlaun. Massinn sást líka aftur en þurfti að láta sér 3ja (bubble) sætið duga eftir að hafa sýnt góða frammistöðu og hangi lengi á litli. Mikkalingurinn og Bótarinn eru nú í öðru sætinu í Bjólfsmeistarakeppninni, 4 stigum á eftir Iðnaðarmanninum sem virðist ekki ætlar að láta neitt stoppa sig þetta árið.

Lesa meira

Reglubreyting: Ótakmarkað re-buy fyrsta klukkutímann

Birt af þann 5. Mar 2017 Í Reglubreytingartillaga, Reglur | 1 ummæli

Upp kom umræða á föstudaginn að leyfa að kaupa sig inn ótakmarkað fyrsta klukkutímann. Helsta ástæðan er að ef einhver lendir illa fyrir hlé og er búinn að kaupa sig tvisvar inn þá getur hann ekkert gert af hættu við að detta út.

Eins og staðan er í dag er mest hægt að eyða 5þ kalli á kvöldi en með þessu getur sú upphæð hækkað óendanlega. En í ljósi hvernig menn spila orðið þá held ég að það verði ekki vandamál og eru menn að meðaltali að fara með 2.5þ – 3þ á kvöldi.

Þeir sem vilja passa sig geta alltaf tekið sér pásu fram að hléi og keypt sig þá inn ef þeir vilja hafa þak á sjálfum sér og ekki eyða meira en einhver tiltekin upphæð.

Lesa meira

Bósi 1

Birt af þann 5. Mar 2017 Í Fréttir, Mót | Engin ummæli


10 Bjólfsmenn lögðu leið sína upp til fjalla til Bósa en hittu þar fyrir vel upphitaðan Bósa sem var sjóðheitur yfir Leeds leik…sá leikur endaði með sigri og við það tvíelfdist húsráðandinn…meira að segja svo mikið að hann gekk berserksgang og tók út fína stofuljósið sitt sem hafði verið sérvalið og síðasta eintakið á landinu þegar það var verslað fyrir ekki löngu.

Bjórstig

Það var rakað inn bjórstigum og 4 sem komu í hús, Iðnaðarmaðurinn heldur enn öruggri forystu og er vel settur eins og staðan er þegar 3 kvöld eru eftir.

Kóngar og þristar
Það var mikið af kóngum og þristum í spilunum og hérna sjáum við dæmi um tvær hendur:

Pusi hélt að hann væri í góðum málum með 3 kónga og Robocop næstum henti frá sér fjörkunum þegar mönnum var síðan bent á að þeir mynduðu hús og tækju þannig kóngana.


Pusi var á ferðinni með K8 á móti K6 hjá Lucky þegar að sexa á river færði spilið yfir til Lucky…dæmigerður.

Barnastóllinn var ekki að gefa Robocop neina lukku:

Iðnaðarmaðurinn datt snemma út og gaf því öðrum kost á að nálgast sig á stigatöflunni og Mikkalingurinn nýtti sér það og jafnaði hann í Bjólfsmeistarakeppninni…þrátt fyrir að vera hafa ekki mætt á 2 mót tímabilsins…þannig að það er hörku spenna fyrir síðustu 3 kvöldin.

Enginn annar en Bósi stóð uppi sem sigurvegari…enda á heimavellinum og þurfti aðeins að safna í púkk fyrir nýju ljósi í stofuna 😉 Nágranninn tók annað sætið og er hægt að sjá tölfræði yfir stöðuna á stigatöflunni.

Takk fyrir heimboðið Bósi og það eru 2 heimamót eftir, 31. mars og 28. apríl…þið sem hafið ekki haldið mót endilega bjóðið ykkur fram og takið þátt í þessu með okkur.

Lesa meira

Hvalur 2

Birt af þann 4. Feb 2017 Í Mót | Engin ummæli


Önnur mótaröðin var kláruð hjá Lucky í gær og voru það 9 Bjólfsmenn sem mættu á svæðið og var því spilað á 2 borðum þar sem við spilum bara 8 á einu.

Lominn lét sjá sig byrjaði með nokkrum látum (dæmigerður Lommi) en náði nú ekki að stela sigrinum í þetta skiptið eins og oft þegar hann gerir sér ferð á mót.

Pusi mætti sterkur inní bjórkeppnina og nældi sér í 2 stig og Iðnaðarmanninum varð svo um að hann náði sér í eitt líka til að halda góðri forystu og Lucky náði sér einnig í eitt.

Margar góðar og skemmtilegar hendur sem mættu og gott kvöld eins og alltaf þar sem kunnugleg sjón var þegar Mikkalingurinn og Bótarinn sátu tveir í lokarimmunni eftir að Robocop tók bubble sætið.

Hvalurinn tók þetta á endanum og tryggði sér þannig sigur í annari mótaröðinni. Bótarinn færir sig nær Iðnaðarmanninum sem heldur samt góðri 3ja stiga forystu í Bjófsmeistarakeppninni og nú er nú eru aðeins 3 heimamót og síðan bústaðurinn eftir af tímabilinu.

Lesa meira

“Gjafmildir” Bjólfsmenn

Birt af þann 15. Jan 2017 Í Bjólfur OPEN, Mót | Engin ummæli

OPEN mótið var haldið á föstudaginn á Ljóninu að vanda og mættu þar 8 Bjólfsmenn og 6 gestir. Skipulagið var með minna móti í ár og tekur formaður það alfarið á sig. Massinn hafði ætlað að sjá um tölvuna en virðist hafa forfallast og mætti Lucky því á síðustu stundu til að hafa eftirlit með öllu 😉

Við vorum gjafmildir eins og oft áður og “leyfðum” gestum að njóta sigursætanna. Pusi komst lengst Bjófsmanna en sigurvegarar voru: Kiddi í fyrsta, Gummi í öðru og Atli í þriðja og skipti þeir á milli sín um 40þ kalli. Til hamingju með þetta strákar og takk allir gestir sem mættu.

Engar aukareglur voru í gangi, aðeins stig fyrir Bjólfsmenn og þar sem Timbrið missti af þessu móti er Iðnaðarmaðurinn kominn í forystu í Bjólfskeppninni og leiðir einnig í 7-2 keppninni þannig að hann stendur vel að vígi þegar að tímabilið er hálfnað. Hann hefur einnig 2ja stiga forystu í annari mótaröðinni þar sem Bósi er næsstur.

Gott kvöld (eins og alltaf) og nú eru 4 mót fram að bústað. Sjáumst næst 3. febrúar.

Lesa meira

Iðnaðarmaðurinn 1

Birt af þann 3. Dec 2016 Í Mót | Engin ummæli

7 Bjólfsmenn hittust hjá Mikkalingnum í gær og var það Kósý Jólapóker sem fór fram.

Bjór var gerður upp af Bósa og Mikkalingnum og hægt að sjá hverjir eru búnir að gera upp bjórinn og árgjaldið (sem margir eiga eftir að klára) á árgjaldssíðunni. Engar sjöa-tvistur náðu stigi á kvöldinu og Iðnaðarmaðurinn því enn með forystu með 3 bjórstig, sjá stigatöfluna.

Spilið hófst og Lucky var fyrstur til að detta út og heldur uppteknum hætti eftir slæma byrjun á tímabilinu: virðist ekki ætla að gera atlögu að Bjólfsmeistaratiltlinum í ár.
Mikklaingurinn tók næsta sæti út og Timbrið fylgdi svo á eftir. Bótarinn síðan og Bósi tók Bubble sætið og skildi Killerinn og Iðnaðarmanninn eftir í sigurrimmunni.
Svo fóru leikar að Killerinn játaði sig sigraðan fyrir Iðnaðarmanninum sem færði sig uppí annað sætið upp fyrir Massann sem mætti ekki. Timbrið hefur enn 2ja stiga forystu í Bjólfsmeistarakeppninni og hörku keppni þar í gagni og Massinn og Bótarinn ekki langt undan.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…